Salmos 136

ISL

1 Þakkið Drottni, því að hann er góður, miskunn hans varir að eilífu!

2 Þakkið Guði guðanna, því að miskunn hans varir að eilífu.

3 Þakkið Drottni drottnanna, því að miskunn hans varir að eilífu.

4 Lofið hann sem einn gjörir furðuverk, því að miskunn hans varir að eilífu.

5 Lofið hann sem skapaði himininn, því að miskunn hans varir að eilífu.

6 Lofið hann sem aðskildi höf og lönd, því að miskunn hans varir að eilífu.

7 Lofið hann sem skapaði ljósgjafa himinsins, því að miskunn hans varir að eilífu.

8 Sólina til að ráða deginum, því að miskunn hans varir að eilífu

9 og tunglið og stjörnurnar til að ráða um nætur, því að miskunn hans varir að eilífu.

10 Lofið Guð sem laust frumburði Egypta, því að miskunn hans við Ísrael varir að eilífu.

15 en drekkti í hafinu hersveitum faraós, því að miskunn hans við Ísrael varir að eilífu.

16 Lofið hann sem leiddi lýð sinn yfir auðnina, því að miskunn hans varir að eilífu.

17 Lofið hann sem frelsaði lýð sinn undan voldugum konungum, því að miskunn hans varir að eilífu

18 og laust þá til dauða, þessa óvini Ísraels, því að miskunn hans við Ísrael varir að eilífu:

19 Síhon, Amoríta-konung, því að miskunn Guðs við Ísrael varir að eilífu

20 – og Óg, konung í Basan – því að miskunn hans við Ísrael varir að eilífu.

21 Guð gaf Ísrael lönd þessara konunga til eilífrar eignar, því að miskunn hans varir að eilífu.

22 Já, þau skyldu verða varanleg gjöf til Ísrael, þjóns hans, því að miskunn hans varir að eilífu.

23 Hann minntist okkar í eymd okkar, því að miskunn hans varir að eilífu

24 og frelsaði okkur frá óvinum okkar, því að miskunn hans varir að eilífu.

25 Hann gefur fæðu öllu því sem lifir, því að miskunn hans varir að eilífu.

26 Já, færið Guði himnanna þakkir, því að miskunn hans varir að eilífu!

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado