Romanos 8

ISL vs ARIB

Sair da comparação
ARIB Almeida Revisada Imprensa Bíblica
1 Þeir sem tilheyra Jesú Kristi verða ekki fordæmdir.
1 Portanto, agora nenhuma condenação há para os que estão em Cristo Jesus.
2 Kraftur heilags anda, sem fæst af trúnni á Jesú Krist, hefur leyst mig út úr þessum vítahring syndar og dauða.
2 Porque a lei do Espírito da vida, em Cristo Jesus, te livrou da lei do pecado e da morte.
3 Við frelsumst ekki úr klóm syndarinnar með því að kunna boðorðin, því að við getum ekki haldið þau. Guð opnaði hins vegar aðra leið til að frelsa okkur. Hann sendi okkur einkason sinn sem varð maður eins og við, að öðru leyti en því að við erum syndug. Sonurinn braut á bak aftur það vald sem syndin hafði yfir okkur, með því að deyja fyrir syndir okkar.
3 Porquanto o que era impossível à lei, visto que se achava fraca pela carne, Deus enviando o seu próprio Filho em semelhança da carne do pecado, e por causa do pecado, na carne condenou o pecado.
4 Þess vegna getum við nú hlýtt lögum Guðs, það er að segja, ef við förum eftir því sem heilagur andi segir, í stað þess að hlýðnast eigingirni okkar.
4 para que a justa exigência da lei se cumprisse em nós, que não andamos segundo a carne, mas segundo o Espírito.
5 Þeir sem láta eigin vilja ráða, stjórnast af lægstu hvötum sínum og lifa aðeins til að þóknast sjálfum sér, en þeir sem hlýða heilögum anda gera það sem Guði er þóknanlegt.
5 Pois os que são segundo a carne inclinam-se para as coisas da carne; mas os que são segundo o Espírito para as coisas do Espírito.
6 Heilagur andi veitir líf og frið, en ef við hlýðum eigingirninni þá endar slíkt með dauða,
6 Porque a inclinação da carne é morte; mas a inclinação do Espírito é vida e paz.
7 því að hún er í andstöðu við Guð. Hún hefur ekki hlýtt lögum Guðs hingað til og mun aldrei gera.
7 Porquanto a inclinação da carne é inimizade contra Deus, pois não é sujeita à lei de Deus, nem em verdade o pode ser;
8 Þetta er ástæða þess að þeir sem enn láta eigingirnina, sjálfselskuna og syndina móta líf sitt, geta aldrei þóknast Guði.
8 e os que estão na carne não podem agradar a Deus.
9 En þannig er ekki ástatt um ykkur, því að þið hljótið að láta stjórnast af nýja hugarfarinu ykkar, svo framarlega sem heilagur andi býr í ykkur. (Minnist þess að sá sem ekki á anda Krists er alls ekki kristinn.)
9 Vós, porém, não estais na carne, mas no Espírito, se é que o Espírito de Deus habita em vós. Mas, se alguém não tem o Espírito de Cristo, esse tal não é dele.
10 Syndin veldur því að líkamar ykkar munu deyja þótt þið séuð kristin, en andi ykkar mun hins vegar lifa, því að Kristur hefur lífgað hann.
10 Ora, se Cristo está em vós, o corpo, na verdade, está morto por causa do pecado, mas o espírito vive por causa da justiça.
11 Ef nú andi Guðs, sem reisti Jesú upp frá dauðum, býr í ykkur, þá mun Guð síðar reisa líkama ykkar upp frá dauðum með krafti anda síns.
11 E, se o Espírito daquele que dos mortos ressuscitou a Jesus habita em vós, aquele que dos mortos ressuscitou a Cristo Jesus há de vivificar também os vossos corpos mortais, pelo seu Espírito que em vós habita.
12 Kæru systkini í Kristi, af þessu sjáið þið að þið hafið alls engar skyldur við gamla synduga eðlið ykkar og þurfið ekki að hlýðnast því.
12 Portanto, irmãos, somos devedores, não à carne para vivermos segundo a carne;
13 Ef þið haldið því áfram þá glatist þið, en ef þið deyðið það og allar afleiðingar þess með krafti heilags anda, þá munuð þið lifa,
13 porque se viverdes segundo a carne, haveis de morrer; mas, se pelo Espírito mortificardes as obras do corpo, vivereis.
14 því að allir þeir, sem láta anda Guðs leiða sig, eru Guðs börn.
14 Pois todos os que são guiados pelo Espírito de Deus, esses são filhos de Deus.
15 Við eigum því ekki að líkjast hræddum og niðurlútum þrælum, heldur eigum við að hegða okkur eins og einkabörn Guðs. Hann hefur tekið okkur inn í fjölskyldu sína og leyft okkur að kalla sig föður, já, pabba!
15 Porque não recebestes o espírito de escravidão, para outra vez estardes com temor, mas recebestes o espírito de adoção, pelo qual clamamos: Aba, Pai!
16 Heilagur andi segir okkur að við séum Guðs börn og það erum við!
16 O Espírito mesmo testifica com o nosso espírito que somos filhos de Deus;
17 Og fyrst við erum börnin hans, erum við líka erfingjar hans og fáum að njóta auðæfa hans með honum, því að allt sem Guð gefur syni sínum Jesú, eigum við með honum. En ef við eigum að fá hlutdeild í dýrð hans, þá verðum við einnig að vera reiðubúin að þjást með honum.
17 e, se filhos, também herdeiros, herdeiros de Deus e co-herdeiros de Cristo; se é certo que com ele padecemos, para que também com ele sejamos glorificados.
18 Þjáningar þessa lífs eru þó ekkert í samanburði við þá miklu dýrð sem hann mun gefa okkur síðar.
18 Pois tenho para mim que as aflições deste tempo presente não se podem comparar com a glória que em nós há de ser revelada.
19 Öll sköpunin bíður þess dags, þolinmóð og vongóð, er Guð vekur börnin sín.
19 Porque a criação aguarda com ardente expectativa a revelação dos filhos de Deus.
20 — ausente —
20 Porquanto a criação ficou sujeita à vaidade, não por sua vontade, mas por causa daquele que a sujeitou,
21 — ausente —
21 na esperança de que também a própria criação há de ser liberta do cativeiro da corrupção, para a liberdade da glória dos filhos de Deus.
22 Okkur er ljóst að náttúran – bæði dýrin og jurtirnar – er ofurseld sjúkdómum og dauða meðan hún bíður þessa stórkostlega atburðar.
22 Porque sabemos que toda a criação, conjuntamente, geme e está com dores de parto até agora;
23 En náttúran er ekki ein um að þjást. Við, sem eigum heilagan anda, forsmekkinn að dýrð framtíðarinnar, þráum einnig að losna frá kvöl og þjáningum. Ó, hve við þráum þann dag er Guð veitir okkur hinn fullkomna barnarétt og um leið nýju líkamana sem hann hefur lofað okkur – líkama sem hvorki veikjast né deyja.
23 e não só ela, mas até nós, que temos as primícias do Espírito, também gememos em nós mesmos, aguardando a nossa adoração, a saber, a redenção do nosso corpo.
24 Þessi von okkar hefur frelsað okkur. Að trúa er hið sama og að vænta einhvers sem enn er ekki orðið, en sá sem á, þarf ekki að vona og trúa að hann muni fá.
24 Porque na esperança fomos salvos. Ora, a esperança que se vê não é esperança; pois o que alguém vê, como o espera?
25 Að bíða í von eftir því sem Guð mun gefa, styrkir trú okkar og þolinmæði.
25 Mas, se esperamos o que não vemos, com paciência o aguardamos.
26 Eins er með trúna og heilagan anda. Heilagur andi hjálpar okkur að biðja og leysa dagleg vandamál. Oft vitum við ekki hvers við eigum að biðja eða hvaða orð við eigum að nota, en þá kemur heilagur andi okkur til hjálpar og gefur okkur réttu orðin í bænina.
26 Do mesmo modo também o Espírito nos ajuda na fraqueza; porque não sabemos o que havemos de pedir como convém, mas o Espírito mesmo intercede por nós com gemidos inexprimíveis.
27 Faðirinn, sem þekkir hjörtu allra, veit auðvitað hvað heilagur andi á við þegar hann biður fyrir okkur samkvæmt vilja Guðs,
27 E aquele que esquadrinha os corações sabe qual é a intenção do Espírito: que ele, segundo a vontade de Deus, intercede pelos santos.
28 og við vitum að allt sem gerist í lífi okkar verður til góðs, ef við elskum Guð og lifum í samræmi við vilja hans.
28 E sabemos que todas as coisas concorrem para o bem daqueles que amam a Deus, daqueles que são chamados segundo o seu propósito.
29 Guð ákvað í upphafi að þeir sem til hans kæmu – hann hefur alltaf vitað hverjir það yrðu – skyldu líkjast syni hans, svo að sonur hans yrði hinn fyrsti í hópi margra systkina.
29 Porque os que dantes conheceu, também os predestinou para serem conformes à imagem de seu Filho, a fim de que ele seja o primogênito entre muitos irmãos;
30 Þegar hann hafði valið okkur, þá kallaði hann okkur til sín og þegar við komum, þá sýknaði hann okkur. Síðan gaf hann okkur kærleika Krists og kom öllu í sátt á milli okkar og sín og hét okkur dýrð sinni.
30 e aos que predestinou, a estes também chamou; e aos que chamou, a estes também justificou; e aos que justificou, a estes também glorificou.
31 Hvað getum við sagt við slíkri gæfu? Fyrst Guð er með okkur, hver megnar þá að standa gegn okkur?
31 Que diremos, pois, a estas coisas? Se Deus é por nós, quem será contra nós?
32 Guð hlífði ekki sínum eigin syni, heldur lagði hann í sölurnar fyrir okkur öll, og fyrst svo er, skyldi hann þá ekki gefa okkur allt annað að auki? Jú, svo sannarlega!
32 Aquele que nem mesmo a seu próprio Filho poupou, antes o entregou por todos nós, como não nos dará também com ele todas as coisas?
33 Hver dirfist að ákæra okkur fyrst Guð hefur valið okkur til að vera börnin sín? Hann fyrirgaf okkur og kom okkur í sátt við sig.
33 Quem intentará acusação contra os escolhidos de Deus? É Deus quem os justifica;
34 Hver mun þá geta fordæmt okkur? Kristur? Nei! Því að hann dó fyrir okkur og situr nú í hásæti dýrðarinnar á himnum, næstur Guði, og biður fyrir okkur.
34 Quem os condenará? Cristo Jesus é quem morreu, ou antes quem ressurgiu dentre os mortos, o qual está à direita de Deus, e também intercede por nós;
35 Getur þá nokkuð útilokað okkur frá kærleika Krists? Hvað með erfiðleika og ógæfu ýmiss konar? Eru ekki ofsóknir og niðurlæging, sem við verðum fyrir, sönnun þess að hann hafi ekki lengur velþóknun á okkur? Eða hvað um hungur, fátækt og lífshættu? Gefur slíkt ekki til kynna að Guð hafi yfirgefið okkur?
35 quem nos separará do amor de Cristo? a tribulação, ou a angústia, ou a perseguição, ou a fome, ou a nudez, ou o perigo, ou a espada?
36 Nei! Gamla testamentið segir að sé það vilji Guðs, verðum við að vera reiðubúin að horfast í augu við dauðann hvenær sem er – já, vera eins og lömb sem bíða slátrunar.
36 Como está escrito: Por amor de ti somos entregues à morte o dia todo; fomos considerados como ovelhas para o matadouro.
37 En hvað sem þessu líður þá erum við sigursæl í Kristi, honum sem elskaði okkur svo heitt að hann dó fyrir okkur.
37 Mas em todas estas coisas somos mais que vencedores, por aquele que nos amou.
38 Ég er sannfærður um að ekkert mun geta gert okkur viðskila við kærleika Krists, hvorki dauði né líf, né nokkur önnur öfl á himni eða jörðu. Atburðir líðandi stundar, áhyggjuefni morgundagsins,
38 Porque estou certo de que, nem a morte, nem a vida, nem anjos, nem principados, nem coisas presentes, nem futuras, nem potestades,
39 hamfarir náttúrunnar – ekkert af þessu mun nokkru sinni megna að gera okkur viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.
39 nem a altura, nem a profundidade, nem qualquer outra criatura nos poderá separar do amor de Deus, que está em Cristo Jesus nosso Senhor.

Ler em outra tradução

Comparar com outra