2 Pedro 2
ISL vs ARIB
1 Falsspámenn komu einnig fram í þá daga og hið sama mun gerast hjá ykkur. Þeir munu beita kænsku við að breiða út lygi um Guð. Þeir munu jafnvel ganga svo langt að afneita Drottni sínum, sem frelsaði þá, og þegar svo er komið eru afdrif þeirra augljós: Bráð glötun.
1 Mas houve também entre o povo falsos profetas, como entre vós haverá falsos mestres, os quais introduzirão encobertamente heresias destruidoras, negando até o Senhor que os resgatou, trazendo sobre si mesmos repentina destruição.
2 Margir munu aðhyllast villukenningar þeirra og þeir munu fá fólk til að hlæja að Kristi og kenningum hans.
2 E muitos seguirão as suas dissoluções, e por causa deles será blasfemado o caminho da verdade;
3 Þessir fræðarar munu segja ykkur allt sem þeim dettur í hug, til þess eins að græða á ykkur og komast yfir peningana ykkar. Langt er síðan Guð fordæmdi slíka menn og nú bíður þeirra ekkert nema glötun.
3 também, movidos pela ganância, e com palavras fingidas, eles farão de vós negócio; a condenação dos quais já de largo tempo não tarda e a sua destruição não dormita.
4 Ekki hlífði Guð englunum sem syndguðu, heldur varpaði hann þeim niður til heljar, þar sem þeir bíða dómsdags, læstir inni í dimmum og drungalegum hellum.
4 Porque se Deus não poupou a anjos quando pecaram, mas lançou-os no inferno, e os entregou aos abismos da escuridão, reservando-os para o juízo;
5 Ekki hlífði hann heldur fólkinu sem lifði fyrr á öldum, á dögum flóðsins, að Nóa undanskildum, manninum sem játaði trú sína á Guð ásamt sjö öðrum í fjölskyldu sinni. Í þessu gífurlega flóði eyddi Guð hinum óguðlega heimi.
5 se não poupou ao mundo antigo, embora preservasse a Noé, pregador da justiça, com mais sete pessoas, ao trazer o dilúvio sobre o mundo dos ímpios;
6 Síðar gerði hann borgirnar Sódómu og Gómorru að rjúkandi rúst. Hann þurrkaði þær út af yfirborði jarðarinnar og setti þær sem víti til varnaðar, öllum óguðlegum mönnum framtíðarinnar, svo að þeir mættu minnast þeirra og skelfast.
6 se, reduzindo a cinza as cidades de Sodoma e Gomorra, condenou-as à destruição, havendo-as posto para exemplo aos que vivessem impiamente;
7 — ausente —
7 e se livrou ao justo Ló, atribulado pela vida dissoluta daqueles perversos
8 — ausente —
8 {porque este justo, habitando entre eles, por ver e ouvir, afligia todos os dias a sua alma justa com as injustas obras deles};
9 Fyrst Drottinn gat bjargað Lot, þá getur hann einnig bjargað þér og mér út úr þeim freistingum sem umkringja okkur, og hann getur einnig refsað hinum óguðlegu, allt til þess dags er lokadómurinn verður kveðinn upp.
9 também sabe o Senhor livrar da tentação os piedosos, e reservar para o dia do juízo os injustos, que já estão sendo castigados;
10 Drottinn mun kveða upp þungan dóm yfir þeim sem láta leiðast af girnd sinni og illum hugsunum; einnig þeim sem eru stoltir og einþykkir og dirfast að hæðast að dýrð hans.
10 especialmente aqueles que, seguindo a carne, andam em imundas concupiscências, e desprezam toda autoridade. Atrevidos, arrogantes, não receiam blasfemar das dignidades,
11 Þetta gera þessir falskennendur enda þótt englarnir, sem standa frammi fyrir Drottni á himnum – og eru þeir miklu æðri að tign og mætti – fari aldrei niðrandi orðum um þessi illu máttarvöld.
11 enquanto que os anjos, embora maiores em força e poder, não pronunciam contra eles juízo blasfemo diante do Senhor.
12 Þessir falskennendur eru heimskir. Þeir eru engu betri en dýrin, sem aðeins láta stjórnast af hvötum sínum og eru fædd til þess eins að verða slátrað. Þeir hlæja að hinum voldugu, sem þeir þekkja ekki hót. Slíkir menn munu fá það sem þeir eiga skilið fyrir illverk sín – glötun.
12 Mas estes, como criaturas irracionais, por natureza feitas para serem presas e mortas, blasfemando do que não entendem, perecerão na sua corrupção,
13 Það verða launin sem þeir munu fá fyrir syndir sínar, því að þeir eru munaðarseggir sem sækjast stöðugt eftir því sem illt er. Þeir eru til skammar og svívirðingar á meðal ykkar. Þeir draga ykkur á tálar, því að bæði lifa þeir í viðbjóðslegri synd og svo taka þeir þátt í kærleiksmáltíðum ykkar eins og allt væri í besta lagi.
13 recebendo a paga da sua injustiça; pois que tais homens têm prazer em deleites à luz do dia; nódoas são eles e máculas, deleitando-se em suas dissimulações, quando se banqueteiam convosco;
14 Engin kona kemst hjá syndsamlegum augnagotum þeirra og af hórdómi fá þeir aldrei nóg. Þeir leika sér að því að tæla óstöðugar konur og æsa þar með upp í sér girndina – bölvun dómsins bíður þeirra.
14 tendo os olhos cheios de adultério e insaciáveis no pecar; engodando as almas inconstantes, tendo um coração exercitado na ganância, filhos de maldição;
15 Þeir hafa yfirgefið hinn rétta veg og villst eins og Bíleam, sonur Beórs, sem elskaði rangfenginn gróða.
15 os quais, deixando o caminho direito, desviaram-se, tendo seguido o caminho de Balaão, filho de Beor, que amou o prêmio da injustiça,
16 En Bíleam var stöðvaður á villubraut sinni, er asninn hans tók að tala við hann mannamál og ávíta hann.
16 mas que foi repreendido pela sua própria transgressão: um mudo jumento, falando com voz humana, impediu a loucura do profeta.
17 Þessir menn eru eins og lindir sem þornað hafa upp. Þeir lofuðu góðu, en svo brugðust þeir. Þeir eru eins og ský sem hrekjast fyrir vindi. Þeir eru dæmdir til að falla í hin eilífu hyldýpi myrkursins.
17 Estes são fontes sem água, névoas levadas por uma tempestade, para os quais está reservado o negrume das trevas.
18 Þeir hrósa sér fjálglega af syndum sínum og árangri í kvennamálum og nota girnd sína sem beitu til að draga þá, sem nýsloppnir eru úr slíku spillingarfeni, aftur út í syndina.
18 Porque, falando palavras arrogantes de vaidade, nas concupiscências da carne engodam com dissoluções aqueles que mal estão escapando aos que vivem no erro;
19 Þeir segja: „Fagnaðarerindið gefur þér rétt til að gera hvað sem þig langar til. Vertu frjáls!“
19 prometendo-lhes liberdade, quando eles mesmos são escravos da corrupção; porque de quem um homem é vencido, do mesmo é feito escravo.
20 Sá sem hefur sloppið úr greipum hins illa í þessum heimi, með því að kynnast Drottni okkar og frelsara Jesú Kristi, en flækist síðan aftur í neti syndarinnar og verður þræll hennar að nýju, er verr staddur en áður en hann varð kristinn.
20 Porquanto se, depois de terem escapado das corrupções do mundo pelo pleno conhecimento do Senhor e Salvador Jesus Cristo, ficam de novo envolvidos nelas e vencidos, tornou-se-lhes o último estado pior que o primeiro.
21 Betra hefði verið fyrir hann að kynnast aldrei Kristi, en að kynnast honum og snúa síðan bakinu við hinum heilögu boðorðum, sem honum voru gefin.
21 Porque melhor lhes fora não terem conhecido o caminho da justiça, do que, conhecendo-o, desviarem-se do santo mandamento que lhes fora dado.
22 Gamall málsháttur hljóðar svo: „Hundur snýr aftur til spýju sinnar og þvegið svín veltir sér í saur.“ Þannig fer fyrir þeim sem snúa sér aftur að syndinni.
22 Deste modo sobreveio-lhes o que diz este provérbio verdadeiro; Volta o cão ao seu vômito, e a porca lavada volta a revolver-se no lamaçal.
Atalhos do teclado
- Capítulo anterior←
- Próximo capítulo→
- Versículo anteriork
- Próximo versículoj
- Limpar seleçãoEsc
- Esta ajuda?