Salmos 98

ISL_BIB

1 Syngið nýjan söng fyrir Drottin því að hann hefur unnið dásamlegt verk! Hann er sigursæll í mætti sínum og heilagleika.

2 Hann hefur tilkynnt sigur sinn – birt þjóðunum réttlæti sitt.

3 Hann hefur miskunnað lýð sínum, haldið loforð sín til Ísrael. Allur heimurinn sá er Guð bjargaði þjóð sinni.

4 Þess vegna hefja löndin fagnaðarsöng, syngja og lofa hann af öllu hjarta.

5 Syngið Drottni við undirleik hörpu.

6 Blásið í lúðra og básúnur gjalli! Hljómsveitin spili lofgjörðarlag. Hyllið Drottin, konunginn!

7 Hafið drynji og lofi Drottin! Jörðin og íbúar hennar reki upp fagnaðaróp!

8 Fossarnir klappi lof í lófa og klettarnir syngi gleðisöng, því að Drottinn mun dæma heiminn í réttlæti sínu og af réttvísi.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado