Salmos 54

ISL_BIB

3 Komdu í mætti þínum, ó Guð, og bjargaðu mér! Verndaðu mig með krafti þínum!

4 Bænheyrðu mig,

5 því að ofbeldismenn hafa risið gegn mér – heiðingjar sem ekki trúa á þig, sækjast eftir lífi mínu.

6 En Guð er minn hjálpari. Hann er vinur minn!

7 Fyrir hans tilverknað mun illska þeirra koma þeim sjálfum í koll. Efndu loforð þitt, Guð, og þurrkaðu út þessa illvirkja.

8 Glaður kem ég fram fyrir þig með fórn mína. Ég lofa nafn þitt, Drottinn, því það er gott.

9 Guð hefur frelsað mig frá dauða og yfirbugað óvini mína.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado