Salmos 46

ISL_BIB

1 Guð er mér hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.

3 Þess vegna óttumst við ekki, þótt heimurinn farist og fjöllin steypist í hafið.

4 Hafið æði og freyði, fjöllin nötri og skjálfi!

5 Lækir gleðinnar streyma frá borg Guðs – frá heilögum bústað Guðs hins hæsta.

6 Hér býr Guð, hún mun ekki haggast. Þegar þörf er á, kemur Guð henni til hjálpar.

7 Þjóðir risu upp og létu ófriðlega en þegar Guð talaði varð heimurinn að þagna og jörðin nötraði.

8 Drottinn, hann sem ræður hersveitum himinsins, er hér! Hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er kominn til að hjálpa.

9 Komið og sjáið máttarverk hans á jörðinni.

10 Hann stöðvar styrjaldir um víða veröld, brýtur vopnin og kastar á eld.

11 „Þögn! Standið kyrr! Vitið að ég er Guð! Allar þjóðir heims syni mér lotningu.“

12 Drottinn hersveita himinsins er hér, hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er hér til að frelsa!

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado