Salmos 149

ISL_BIB

1 Hallelúja! Lofið Drottin! Syngið honum nýjan söng. Lofsyngið honum öll þjóðin.

2 Ó, Ísrael, gleð þig yfir skapara þínum. Þið sem búið í Jerúsalem, fagnið yfir konungi ykkar!

3 Lofið nafn hans með gleðidansi og leikið fyrir hann á bumbur og gígjur.

4 Drottinn hefur unun af lýð sínum. Hann frelsar hina auðmjúku. Hinir trúuðu gleðjist með sæmd og syngi fagnandi í hvílum sínum.

6 Lofið hann, þið fólk hans! Framkvæmið refsingu hans á þjóðunum með tvíeggjuðu sverði.

8 Setjið konunga þeirra og fyrirmenn í járn og fullnægið á þeim skráðum dómi. Drottinn er vegsemd þjóðar sinnar. Hallelúja!

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado