Salmos 128

ISL_BIB

1 Sæll er hver sá sem heiðrar Drottin, treystir honum og hlýðir.

2 Honum mun launað með velgengni og hamingju.

3 Kona hans hugsar vel um heimilið – og ekki mun þau skorta börn! Þarna sitja þau að matnum, þróttmikil og frísk eins og ung olífutré!

4 Þannig launar Guð þeim sem elska hann og treysta honum.

5 Drottinn blessi þig frá musterinu á Síon. Alla þína ævidaga muntu gleðjast yfir velgengni Jerúsalem

6 og eignast marga afkomendur. Friður Guðs sé yfir Ísrael!

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado