Salmos 74

ISL

1 Guð, hvers vegna hefur þú hafnað okkur fyrir fullt og allt? Af hverju ertu reiður? Við erum þó þín eigin hjörð?

2 Mundu, að við erum þjóðin þín – fólkið sem þú forðum leystir úr útlegð og valdir þér til eignar og gleði. Þú útvaldir Jerúsalem sem bústað þinn á jörðu.

3 Fáðu þér göngu og skoðaðu rústirnar! Sjáðu, óvinirnir hafa eyðilagt borgina og musteri þitt.

4 Þar, já, inni í helgidómnum, æptu þeir heróp, reistu stríðsfána sína og guðamyndir og fögnuðu sigri!

7 Þeir kveiktu í musterinu og gjöreyddu helgidóm þinn, Drottinn.

8 „Þurrkum út allt sem minnir á Drottin!“ öskruðu þeir og brenndu síðan öll samkomuhús Guðs í landinu.

11 Eftir hverju ertu að bíða? Af hverju gerir þú ekkert? Ó, rektu þá burt með þinni sterku hendi!

12 Guð, þú ert konungur minn frá alda öðli. Hjálpar þinnar hef ég notið á öllum mínum ferðum.

15 Eftir skipun þinni opnuðust lindir og þar gat þjóð þín svalað þorstanum. Og þú þurrkaðir fyrir þau farveg Jórdanar, sem annars streymir endalaust.

16 Þú stjórnar bæði nóttu og degi og sólina og stjörnurnar hefur þú skapað.

17 Öll náttúran er á valdi þínu og vetur og sumar eru þín verk.

18 Drottinn líttu á, óvinir þínir spotta þig, ofstopalýður óvirðir nafn þitt!

19 Ó, Drottinn, frelsaðu mig! Verndaðu turtildúfuna þína fyrir ránfuglunum. Bjargaðu eignarlýð þínum úr klóm varganna.

20 Minnstu loforða þinna! Landið er hulið myrkri og ofbeldismenn út um allt.

21 Drottinn, þjóð þín er kúguð, en láttu hana ekki þurfa að þola þessa svívirðing endalaust. Leyfðu hinum fátæku og hrjáðu að lofa nafn þitt!

22 Komdu, ó Guð, og ákærðu óvini okkar. Hlustaðu á óþverrann sem þessi illmenni ausa yfir þig alla daga!

23 Gleymdu ekki formælingum óvina þinna, þær glymja hærra og hærra.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado