Salmos 45

ISL

3 Þú ert fegurri en mannanna börn. Blessun streymir um varir þínar. Velþóknun Guðs er yfir þér að eilífu.

4 Þú hetja, tak herklæði þín, máttugur ertu og krýndur ljóma

5 Sæktu fram! Sigursæll ertu, vörður tryggðar og réttlætis. Gakk fram – máttarverk þín verði á allra vörum!

6 Örvar þínar eru hvesstar, óvinir falla að fótum þér.

7 Hásæti þitt, ó Guð, stendur um eilífð. Réttlætið er sproti þinn.

8 Þú elskar hið góða hefur andstyggð á illsku. Því hefur Guð, þinn Guð, sveipað þig gleði sem engan annan.

9 Skikkja þín ilmar af myrru, alóe og kassíu. Hallir þínar eru skreyttar fílabeini og fyllast af ljúfum tónum.

10 Konungadætur eru í hópi vinkvenna þinna. Drottningin stendur þér við hlið, fagurlega klædd og skreytt skíra gulli frá Ófír!

13 Íbúar Týrus, baða þig í gjöfum og auðmenn þjóðarinnar leita hylli þinnar.“

14 Brúðurin – konungsdóttir – bíður í skrauthýsi sínu, íklædd fegursta djásni, kjól skreyttum gulli og perlum.

15 Fögur er hún! Meyjarnar leiða hana á fund konungs.

16 Þær fara í skrúðgöngu gegnum hliðið. Þarna er höllin!

17 „Synir þínir verða allir konungar og feta í fótspor föður síns. Þeir munu sitja á hásætum víðs vegar um heim!“

18 „Ég mun gera nafn þitt kunnugt meðal allra kynslóða og þjóðir jarðarinnar munu hylla þig að eilífu.“

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado