3 Svara mér í skyndi, nú þegar ég hrópa til þín. Beygðu þig niður að mér og hlustaðu á bæn mína. Vertu mér verndarbjarg, skjól fyrir óvinum.
4 Já, þú ert klettur minn og vígi, sýndu mátt þinn og gerðu nafn þitt dýrlegt og bjargaðu mér.
5 Forða fæti mínum frá snörunni sem óvinir mínir hafa lagt fyrir mig. Þú einn getur frelsað mig.
6 Í þínar hendur fel ég anda minn. Þú, Guð, sem stendur við öll þín orð, þú hefur bjargað mér. Þig einan lofa ég.
7 Ég hata alla þá sem dýrka fánýt falsgoð en Drottni treysti ég.
8 Ég gleðst mjög, því að þú hefur miskunnað mér, þú gafst gaum að þrengingum mínum og sálarneyð.
9 Þú framseldir mig ekki óvinum mínum, heldur rýmkaðir um mig á alla vegu.
12 Ár mín líða í harmi, hryggðin styttir ævi mína. Syndirnar draga úr mér allan þrótt. Hokinn stend ég – sneyptur af skömm. Óvinirnir spotta mig og nágrannarnir hæða mig. Óhug slær að vinum mínum. Þeir, jafnvel þeir, forðast að mæta mér og líta undan þegar ég geng hjá.
13 Ég er gleymdur eins og líkið í gröf sinni – eins og brotið ker sem fleygt hefur verið á haug.
14 Ég frétti hvað um mig var sagt – um baktal óvina minna. Ógn og skelfing var hvert sem ég leit, svik og prettir í öllum hornum!
17 Láttu velþóknun þína aftur verða augljósa á þjóni þínum. Frelsa mig því að þú ert góður!
18 Drottinn, láttu mig ekki verða til skammar þegar ég ákalla þig um hjálp. Láttu illmennin blygðast sín fyrir það sem þau treysta á. Já, sendu þá sneypta og þegjandi í gröfina
19 lygarana sem ásaka réttláta með hroka og fyrirlitningu.
20 Mikil er miskunn þín við þá sem treysta þér og vitna um trúfesti þína, þá sem elska þig og heiðra í augsýn annarra.
21 Vertu ástvinum þínum skjól gegn svikráðum manna, verndaðu þá fyrir illum tungum.
22 Lofaður sé Drottinn, því að hann hefur sýnt mér dásamlega náð og verndað mig gegn illu.
23 Í fljótfærni sagði ég: „Drottinn hefur yfirgefið mig.“ En hann heyrði samt bæn mína og svaraði mér!
24 Elskið Drottin, öll þið sem honum treystið, því að Drottinn verndar trúfasta, en refsar harðlega þeim sem hafna honum í hroka.
25 Verið því glöð og hughraust, öll þið sem vonið á Drottin!