1 Þið englar Drottins, lofið hann í mætti hans og dýrð!
2 Lofið hann í mikilleik dýrðar hans, þeirri dýrð er stafar af nafni hans. Tilbiðjið hann í helgum skrúða.
3 Raust Drottins fyllir himininn, hún kveður við eins og þruma!
4 Rödd hans hljómar kröftuglega, hún hljómar af mikilleik og tign.
9 Raust Drottins skekur skógartrén, feykir burt laufi þeirra og lætur hindirnar bera fyrir tímann. Allir þeir sem standa í helgidómi hans segja: „Dýrð! Já, dýrð sé Drottni!“
10 Flóðið mikla var ógurlegt, en Drottinn er enn meiri! Og enn birtir hann mátt sinn og kraft.
11 Hann mun veita lýð sínum styrkleik og blessa hann með friði og velgengni.