Salmos 26

ISL

1 Drottinn, láttu mig ná rétti mínum, því að ég hef kappkostað að halda boð þín og treyst þér af öllu hjarta.

2 Rannsakaðu mig yst sem innst, Drottinn, og prófaðu viðhorf mín og einlægni.

3 Afstaða mín til lífsins og allra hluta mótaðist hjá þér. Þú kenndir mér elsku og sannleika.

4 Ég forðast félagsskap hræsnara og þeirra sem tala lygi.

5 Ég hef andstyggð á samkundum syndaranna og stíg ekki fæti þar inn.

6 Ég þvæ hendur mínar, gef til kynna sakleysi mitt og geng að altari þínu

7 með þakkargjörð á vörum, minnugur máttarverka þinna.

8 Drottinn, ég elska hús þitt – helgidóminn þar sem dýrð þín birtist!

11 Nei, með slíkum á ég enga samleið. Ég geng hinn beina, en bratta veg sannleikans. Miskunna mér og frelsa mig.

12 Opinskátt og í áheyrn allra lofa ég Drottin, hann sem ver mig hrösun og falli.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado