Salmos 24

ISL

1 Jörðin er eign Drottins og allt sem á henni er, – heimurinn og þeir sem í honum búa.

2 Það var hann sem safnaði vötnunum saman svo að hafið varð til og þurrlendið birtist.

3 Hver fær að stíga upp á fjall Drottins og ganga inn í bústað hans? Hver fær staðist frammi fyrir honum?

4 Aðeins þeir sem hafa hreint hjarta og óflekkaðar hendur, heiðarlegt fólk sem segir sannleikann.

5 Þeir munu njóta gæsku Guðs, og hann, frelsari þeirra, mun lýsa þá réttláta.

6 Það eru þeir sem fá að standa frammi fyrir Drottni og tilbiðja hann, Guð Jakobs.

7 Opnist þið fornu dyr! Konungur dýrðarinnar vill ganga inn.

8 Hver er konungur dýrðarinnar? Það er Drottinn, hinn voldugi og sterki, sigurhetjan.

9 Já, opnist þið ævafornu dyr fyrir konungi dýrðarinnar!

10 Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn, sá er ræður öllum hersveitum himnanna, hann er konungur dýrðarinnar!

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado