Salmos 19

ISL

3 Dagur og nótt vitna um vísdóm Drottins.

6 Hnarreist siglir hún yfir hvolfið, geislandi eins og brúður í brúðkaupi eða hlaupari sem hlakkar til að renna sitt skeið.

7 Sólin fer um himininn frá austri til vesturs, ekkert fær dulist við geislaflóð hennar og yl.

10 Lög Guðs eru eilíf, réttlát og hrein.

11 Þau eru dýrmætari en gull. Þau eru sætari en hunang.

12 Því að þau vara okkur við hættum og efla velgengni þeirra sem hlýða þeim.

13 Hver verður var við syndina sem loðir við hjarta mitt? Hreinsa mig af leyndum syndum.

14 Forða mér frá vondum mönnum, og stöðva hönd mína að ég geri ekkert ljótt. Sýknaðu mig af syndum mínum svo að ég lifi hreinu lífi.

15 Ó, að orðin á vörum mér og hugsanir mínar geðjist þér, þú Guð, klettur minn og frelsari.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado