Salmos 11

ISL

1 Hvernig getið þið sagt: „Flýðu til fjallanna og leitaðu skjóls!?“ Vitið þið ekki að ég treysti því að Drottinn muni hjálpa mér.

2 Óguðlegir leggja ör á streng, spenna boga sína og miða úr launsátri á lýð Guðs.

3 Menn segja: „Lögin hafa verið afnumin! Hinir réttlátu verða að forða sér.“

4 En, Drottinn er enn í sínu heilaga musteri. Hann ríkir enn frá himnum. Hann fylgist grannt með öllu sem gerist á jörðu.

5 Hann prófar bæði trúaða og vantrúaða. Hann fyrirlítur þá sem elska ofbeldi.

6 Hann mun senda eld og brennistein yfir illgjörðamennina og svíða þá með glóheitum vindi.

7 Því að Guð er réttlátur og hefur mætur á góðum verkum. Hinir hjartahreinu munu sjá auglit hans.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado