Marcos 6

ISL

1 Skömmu síðar yfirgaf hann héraðið og sneri aftur ásamt lærisveinum sínum til Nasaret, þar sem hann hafði átt heima.

4 Þá sagði Jesús: „Hvergi er spámaður minna metinn en í heimabæ sínum og meðal fjölskyldu sinnar og ættingja.“

5 Og vegna vantrúar þeirra gat hann ekki gert neitt kraftaverk þar, nema hann lagði hendur yfir nokkra sjúka og læknaði þá.

6 Hann furðaði sig á vantrú þeirra.

7 Hann kallaði til sín lærisveinana tólf og sendi þá af stað tvo og tvo saman og gaf þeim vald til að reka út illa anda.

10 „Hvar sem þið komið eða hafið viðdvöl í borg eða bæ, þá dveljist allan tímann á sama heimili, en farið ekki frá einu heimili til annars.

11 Sé einhverstaðar hvorki tekið á móti ykkur né hlustað á orð ykkar, skuluð þið dusta rykið af fótum ykkar um leið og þið farið þaðan. Það er merki þess að þið hafið ofurselt þorpið örlögum sínum.“

12 Lærisveinarnir héldu nú af stað og hvöttu alla til að iðrast og snúa baki við syndinni.

13 Þeir ráku út marga illa anda og smurðu fjölda fólks með ólífuolíu og læknuðu það.

14 Ekki leið á löngu uns Heródes konungur frétti um Jesú, því að alls staðar var verið að tala um kraftaverk hans. Konungurinn hélt að Jesús væri Jóhannes skírari risinn upp frá dauðum og því sagði fólk: „Nú, það er þá ekkert skrítið þótt hann geti gert slík kraftaverk.“

15 Aðrir héldu að Jesús væri Elía, hinn forni spámaður, endurborinn, og enn aðrir töldu hann vera nýjan spámann, svipaðan hinum miklu spámönnum fyrri alda.

16 „Nei, þetta er Jóhannes, maðurinn sem ég lét hálshöggva, hann er risinn upp frá dauðum,“ sagði Heródes.

19 Heródías vildi því hefna sín á Jóhannesi með því að láta drepa hann, en það gat hún ekki án samþykkis Heródesar.

20 Heródes bar hins vegar virðingu fyrir Jóhannesi, því hann vissi að hann var góður og heilagur maður, og því hélt hann hlífiskildi yfir honum. Heródesi líkaði vel að tala við Jóhannes, þótt samviska hans yrði óróleg í hvert sinn.

21 Loksins sá Heródías sér þó leik á borði. Það var á afmælisdegi Heródesar, en þá bauð hann hallarþjónum sínum og herforingjum, auk helstu fyrirmanna úr Galíleu, til veislu.

24 Stúlkan fór til móður sinnar og ráðfærði sig við hana. Þar fékk hún þetta ráð: „Biddu um höfuð Jóhannesar skírara.“

25 Stúlkan flýtti sér aftur til konungsins og sagði: „Ég vil fá höfuð Jóhannesar skírara á fati – og það strax.“

26 Konungurinn varð hryggur, en þorði þó ekki að ganga á bak orða sinna frammi fyrir öllum gestunum.

27 Hann skipaði því einum lífvarða sinna að fara til fangelsisins og hálshöggva Jóhannes og koma með höfuð hans. Hermaðurinn fór og hjó Jóhannes í fangelsinu.

28 Síðan kom hann með höfuð hans á fati og rétti stúlkunni, sem fór með það til móður sinnar.

29 Þegar lærisveinar Jóhannesar fréttu hvað gerst hafði, sóttu þeir lík hans og jarðsettu það.

30 Lærisveinarnir tólf komu nú aftur til Jesú úr predikunarferð sinni og sögðu honum frá öllu því sem þeir höfðu sagt og gert.

31 Þá sagði Jesús: „Við skulum yfirgefa mannfjöldann um stund og hvíla okkur.“ Fólk var alltaf að koma og fara, svo að þeir höfðu varla næði til að matast.

32 Þeir lögðu því af stað á bátnum og ætluðu á óbyggðan stað.

33 En mannfjöldinn sá til ferða þeirra, hljóp fram með vatninu og tók á móti þeim þegar þeir komu að landi!

34 Hann mætti því aftur sama fólki þegar hann steig út úr bátnum. Og Jesús kenndi í brjósti um fólkið, því það var eins og fjárhópur án hirðis, og hann tók að kenna því margt sem það þurfti að vita.

37 „Þið skuluð gefa þeim að borða,“ sagði Jesús. „Já, en hvernig?“ spurðu þeir. „Það kostar stórfé að fæða allan þennan fjölda.“

38 „Athugið hvað við höfum mikinn mat með okkur.“ sagði Jesús. Þeir komu aftur og sögðu honum að það væru fimm brauð og tveir fiskar.

41 Hann tók nú brauðin fimm og fiskana, horfði upp til himins og þakkaði Guði. Síðan braut hann brauðin og rétti lærisveinunum þau ásamt fiskunum og sagði þeim að bera það til fólksins.

42 Og allir urðu mettir,

45 Eftir þetta bauð Jesús lærisveinunum að fara um borð í bátinn og sigla yfir vatnið til Betsaída, en þar ætlaði hann að hitta þá seinna. Sjálfur ætlaði hann að staldra við, kveðja fólkið og koma því af stað heim.

46 Þegar því var lokið gekk Jesús upp á fjallið til að biðjast fyrir.

47 Um nóttina þegar lærisveinarnir voru komnir út á mitt vatnið, var Jesús einn á ströndinni.

48 Það var hvasst á vatninu og hann sá að róðurinn var þungur hjá þeim.

49 Þegar þeir sáu einhvern á gangi við bátshliðina urðu þeir ofsahræddir og æptu, því þeir héldu að þetta væri vofa

50 – þeir sáu hann allir.

51 Síðan steig hann upp í bátinn og þá lygndi! Lærisveinarnir sátu agndofa og skildu hvorki upp né niður í öllu þessu.

52 Þeir gerðu sér ekki enn grein fyrir hver hann var, þrátt fyrir kraftaverkið kvöldið áður. Það var eins og þeir vildu ekki trúa.

53 Þegar þeir komu til Genesaret hinum megin vatnsins stigu þeir á land og bundu bátinn.

54 Fólk sem stóð þar hjá, þekkti hann undir eins,

55 og hljóp um allt til að láta vita að hann væri kominn. Nú var hafist handa um að færa til hans veikt fólk á börum og dýnum.

56 Hvar sem hann fór – í bæi eða borgir – lagði fólk hina veiku á markaðstorgin eða strætin og bað hann um að leyfa þeim að snerta, þó ekki væri nema faldinn á skikkju hans, og þeir sem það gerðu læknuðust, og hið sama gerðist á bóndabæjum þar sem hann kom.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado