Lucas 4

ISL

1 Jesús fylltist heilögum anda, sem leiddi hann frá ánni Jórdan og út í auðnir Júdeu.

2 Þar var hann í fjörutíu daga matarlaus og hungrið svarf að.

3 Þá freistaði Satan hans og sagði: „Ef þú ert sonur Guðs, þá segðu þessum steini að verða að brauði.“

4 Jesús svaraði: „Biblían segir: „Maðurinn lifir ekki bara á brauði.“ “

5 Þá tók Satan hann með sér og sýndi honum á augabragði öll ríki heimsins

8 En Jesús svaraði: „Í Biblíunni stendur: „Drottin Guð þinn átt þú að tilbiðja og þjóna honum einum.“ “

12 Jesús svaraði: „Þetta stendur einnig í Biblíunni: „Ekki skaltu freista Drottins Guðs þíns.“ “

13 Þegar djöfullinn hafði lokið freistingum sínum, fór hann burt og yfirgaf Jesú að sinni.

14 Eftir þetta sneri Jesús aftur til Galíleu, fylltur heilögum anda, og orðrómurinn um hann barst út um öll héruðin þar í grennd.

15 Hann predikaði í samkomuhúsunum og allir lofuðu hann.

16 Hann kom á æskustöðvar sínar í Nasaret og fór á helgideginum í samkomuhúsið, eins og hann var vanur, og stóð upp til að lesa úr Biblíunni.

17 Honum var fengin bók Jesaja spámanns. Hann opnaði hana og las:

20 Hann lokaði bókinni og rétti þjóninum. Síðan settist hann niður. Allir störðu á hann fullir eftirvæntingar.

21 Hann tók til máls og sagði: „Þessi ritningargrein, sem þið hafið nú heyrt, hefur ræst í dag.“

22 Fólkið lét ánægju sína í ljós og undraðist þau ljúfu orð sem komu af vörum hans. „Hver er skýringin á þessu,“ spurðu menn, „er þetta ekki sonur Jósefs?“

23 Þá sagði Jesús: „Þið minnið mig sjálfsagt á máltækið: „Læknir, læknaðu sjálfan þig“ – og eigið þá við: „Af hverju gerirðu ekki svipuð kraftaverk hér í heimabæ þínum og þú hefur gert í Kapernaum?“

24 Ég segi ykkur satt: Enginn spámaður er viðurkenndur í heimabæ sínum!

27 Og munið þið eftir spámanninum Elísa? Hann læknaði Naaman frá Sýrlandi, en ekki þá mörgu Gyðinga sem voru holdsveikir og þörfnuðust hjálpar.“

28 Við þessi orð Jesú urðu menn æfir af reiði.

29 Þeir stukku úr sætum sínum, þyrptust að honum og hröktu hann út á brún fjallsins, sem bærinn stóð á, með það í huga að hrinda honum fram af þverhnípinu.

30 En Jesús gekk út úr þvögunni og yfirgaf þá.

31 Eftir þetta fór hann til Kapernaum, bæjar í Galíleu, og þar predikaði hann í samkomuhúsinu á hverjum helgidegi.

32 Hér fór á sömu leið, fólkið undraðist það sem hann sagði, því máttur fylgdi orðum hans.

33 Eitt sinn, er Jesús var að kenna í samkomuhúsinu, fór maður, sem hafði illan anda, að hrópa að honum:

34 „Farðu burt! Við viljum ekkert með þig hafa, Jesús frá Nasaret. Þú ert kominn til að granda okkur. Ég veit að þú ert hinn heilagi sonur Guðs.“

35 Þá greip Jesús fram í fyrir illa andanum og sagði skipandi: „Hafðu hljótt um þig og farðu út.“ Andinn fleygði þá manninum í gólfið í augsýn allra og yfirgaf hann án þess að valda honum tjóni.

36 Fólkið varð forviða og spurði: „Hvaða vald býr í orðum þessa manns, fyrst illu andarnir hlýða honum!“

37 Fréttin um þetta breiddist eins og eldur í sinu um allt héraðið.

38 Þegar Jesús yfirgaf samkomuhúsið fór hann heim til Símonar. Þá var tengdamóðir Símonar þar rúmliggjandi með háan hita. Allir viðstaddir báðu Jesú að lækna hana.

39 Jesús gekk að rúmstokknum og hastaði á sótthitann, sem þá hvarf skyndilega, og hún fór á fætur og matreiddi handa þeim.

40 Við sólarlag þetta kvöld komu þorpsbúar með sjúklinga til Jesú. Það skipti ekki máli hver sjúkdómurinn var, þegar Jesús snerti þá læknuðust þeir.

41 Sumir höfðu illa anda sem fóru út að skipun hans. Andar þessir æptu: „Þú ert sonur Guðs!“ Þeir vissu að hann var Kristur, en hann þaggaði niður í þeim og leyfði þeim ekki að tala.

42 Við sólarupprás morguninn eftir, lagði hann leið sína á óbyggðan stað. Mannfjöldinn leitaði hans um allt og fann hann loks. Fólkið bað hann að fara ekki burt frá Kapernaum,

43 en því svaraði hann: „Ég verð líka að fara á fleiri staði og flytja þar gleðifréttirnar um að Guð sé nálægur með vald sitt og hjálp, því til þess var ég sendur.“

44 Síðan hélt hann áfram ferð sinni og predikaði í samkomuhúsunum í Júdeu.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado