João 10

ISL

1 „Sá sem ekki vill ganga inn um dyrnar til að komast inn í sauðabyrgið, heldur klifrar yfir vegginn, hlýtur að vera þjófur.

2 Hirðirinn kemur alltaf inn um dyrnar.

3 Dyravörðurinn opnar fyrir honum og sauðirnir heyra rödd hans og koma til hans. Síðan kallar hann á sauðina með nafni og fer út með þá.

4 Hann gengur á undan þeim og þeir fylgja honum, því að þeir þekkja rödd hans.

5 Ókunnugum fylgja þeir ekki, heldur forðast þá, því að þeir þekkja ekki rödd þeirra.“

6 Þeir sem heyrðu Jesú segja þessa dæmisögu skildu hana ekki,

7 og því útskýrði hann hana fyrir þeim:

8 „Allir sem komu á undan mér voru þjófar og ræningjar og sauðirnir hlýddu þeim ekki.

9 Ég er dyrnar. Þeir sem koma inn um mig munu frelsast, ganga inn og út og fá gott fóður.

10 Þjófurinn ætlar sér að stela; drepa og eyðileggja, en ég kom til að veita líf og nægtir.

11 Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.

12 Þegar leiguliðinn sér úlfinn koma, þá flýr hann og yfirgefur sauðina, því að hann á þá ekki. Og úlfurinn ræðst á hjörðina og hún tvístrast.

13 Þá flýr leiguliðinn, því að hann hugsar aðeins um launin, en honum er ekki annt um hjörðina.

14 Ég er góði hirðirinn og þekki mína og þeir þekkja mig,

15 rétt eins og faðirinn þekkir mig og ég föðurinn. Ég fórna lífi mínu fyrir sauðina.

16 Ég á líka aðra sauði í annarri rétt. Ég verð einnig að leiða þá og þeir munu hlýða rödd minni, það verður ein hjörð og einn hirðir.

17 Faðirinn elskar mig vegna þess að ég legg líf mitt í sölurnar til þess síðan að fá það aftur.

18 Enginn getur tekið líf mitt án míns samþykkis – ég legg það sjálfviljuglega í sölurnar. Ég hef vald til að gefa það þegar ég vil og ég hef einnig vald til að taka það aftur. Þennan rétt hefur faðir minn gefið mér.“

19 Við þessi orð Jesú urðu leiðtogar Gyðinganna enn einu sinni ósammála í skoðunum sínum um hann.

20 Sumir þeirra sögðu: „Annað hvort hefur hann illan anda eða er brjálaður. Hvað þýðir að hlusta á slíkan mann?“

21 Aðrir sögðu: „Okkur virðist hann ekki hafa illan anda. Getur illur andi opnað augu blindra?“ –

24 Þá umkringdu leiðtogar þjóðarinnar hann og spurðu: „Hversu lengi ætlar þú að halda okkur í óvissu? Ef þú ert Kristur, segðu okkur það þá hreinskilnislega.“

25 „Ég hef þegar sagt ykkur það,“ svaraði Jesús, „en þið trúið mér ekki. Kraftaverkin, sem ég geri í nafni föður míns, bera mér vitni.

26 Þið trúið mér ekki af því að þið tilheyrið ekki minni hjörð.

27 Mínir sauðir þekkja mína rödd og ég þekki þá og þeir fylgja mér.

28 Ég gef þeim eilíft líf og þeir munu aldrei að eilífu glatast. Enginn skal slíta þá úr hendi minni,

29 því faðir minn, sem hefur gefið mér þá, er máttugri en nokkur annar. Enginn skal ræna þeim frá mér.

30 Ég og faðirinn erum eitt.“

31 Þegar leiðtogarnir heyrðu þetta tóku þeir enn einu sinni upp steina til að grýta hann.

32 Þá sagði Jesús: „Mörg góðverk sýndi ég ykkur frá Guði, fyrir hvert þeirra grýtið þið mig nú?“

33 „Við grýtum þig ekki fyrir góðverk, heldur guðlast,“ svöruðu þeir. „Þú, sem ert bara venjulegur maður, segist vera Guð!“

37 Þið trúið mér ekki nema ég geri guðdómleg kraftaverk,

38 en reynið þá að trúa þeim, þótt þið trúið mér ekki, og sannfærist um að faðirinn sé í mér og ég í föðurnum.“

39 Þegar þeir heyrðu þetta reyndu þeir aftur að handtaka hann en misstu af honum.

42 Þarna gerðust margir trúaðir á að Jesús væri Kristur.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado