1 Timóteo 1

ISL

1 Frá Páli, sem eftir skipun Guðs, frelsara okkar og Drottins Jesú Krists, er sendiboði Jesú Krists – sem er von okkar.

2 Til Tímóteusar.

5 Markmið kristinnar kenningar er að menn fyllist sönnum kærleika, hafi góða samvisku og eignist sterka trú.

6 Þessir menn hafa misst sjónar á þessu markmiði og nú eyða þeir tímanum í þras og heimskulegar vangaveltur.

7 Þá langar til að afla sér viðurkenningar sem fræðimenn í lögum Móse, en þeir hafa bara ekki minnstu hugmynd um efni þeirra.

8 Lög þessi eru góð, ef þau eru notuð eins og Guð ætlaðist til.

9 Þau voru alls ekki skrifuð fyrir réttláta menn, sem frelsast hafa frá syndinni, heldur fyrir syndara, sem eru óvinir Guðs. Þau voru ætluð lögleysingjum, morðingjum og öðrum vanheilögum syndurum.

12 Ég þakka Drottni Jesú Kristi, að hann skyldi velja mig í hóp sendiboða sinna og gera mig styrkan í trúnni,

13 Mig, sem margoft hafði hætt hann og spottað. Ég ofsótti þá sem á hann trúðu og olli þeim eins miklu tjóni og ég frekast gat. En Guð miskunnaði mér, því að ég vissi ekki hvað ég gerði, enda þekkti ég þá ekki Krist.

14 Drottinn sýndi mér mikla miskunn, því hann kenndi mér að treysta sér og síðan fyllti hann mig kærleika sínum.

15 Það, að Jesús Kristur kom í heiminn til að frelsa synduga menn, er satt og ég vildi að allir fengju að heyra það og trúa. Sjálfur var ég mesti syndarinn.

16 En Guð miskunnaði mér til að Kristur Jesús skyldi sýna mér þolinmæði og langlyndi sitt, til vitnisburðar öðrum syndurum sem eignast trú á hann.

17 Guði sé lof og dýrð um aldir alda! Hann er hinn ódauðlegi og ósýnilegi, konungur eilífðarinnar. Enginn er Guð nema hann. Amen.

20 Hýmeneus og Alexander eru dæmi um slíka menn. Ég varð að gefa þá Satani á vald til refsingar, svo að þeim lærðist að lítilsvirða ekki nafn Krists.

Ler em outra tradução

Comparar lado a lado